Fyrir bakarí
Klippikort fyrir bakarí
Fastir viðskiptavinir koma á hverjum morgni. Gefðu þeim klippikort í símann og tíunda snúðinn frían.
Klippt á augabragði
Morgunröðin bíður ekki eftir stimplum. Starfsfólkið skannar kortið og klippið er komið í símann.
Áfangagjöf á miðri leið
Gefðu kaffibolla eftir fimm klipp og snúð eftir tíu. Viðskiptavinurinn sér alltaf hvað er næst.
Gjafakort fyrir afmæli og jól
Seldu gjafakort við kassann eða á netinu. Inneignin liggur í símaveskinu og lækkar í hvert sinn sem greitt er með kortinu.
Spurt og svarað
- Þarf viðskiptavinurinn app?
- Nei. Hann skannar QR-kóðann með myndavélinni og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet.
- Hvernig er klippt?
- Starfsfólkið skannar kóðann á korti viðskiptavinarins með Klippi Skanna á iPhone eða Android-síma og ýtir á Klippa. Kortið í símanum uppfærist um leið.
- Get ég gefið gjöf á miðri leið?
- Já. Þú getur sett áfangagjöf, til dæmis eftir fimm klipp, auk gjafarinnar þegar kortið er fullt.
- Virkar þetta á fleiri en einum stað?
- Já. Þú getur haft marga staði á einum aðgangi og hver staður sem bætist við kostar minna.
- Hvað kostar klippi?
- 11.900 kr. á mánuði + vsk. fyrir fyrsta stað. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og engin binding.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá