Gjafabréf á netinu
Seldu gjafabréf á netinu, án þóknunar
Opnaðu vefverslun fyrir gjafabréf á léni staðarins. Kaupandinn greiðir á netinu, greiðslan fer beint inn á reikning staðarins og gjafabréfið berst í tölvupósti og fer í símaveskið.
Á þínu eigin léni
Verslunin opnast á léni staðarins, til dæmis gjafabref.þinnstaður.is, í þínum litum og með þínum myndum.
Greiðslan fer beint til þín
Þú tengir þína eigin greiðslugátt og peningurinn fer beint inn á reikning staðarins. klippi tekur enga þóknun af sölunni.
Inneignin uppfærist sjálf
Gjafabréfið liggur í Apple Wallet eða Google Wallet. Þegar greitt er með því dregur starfsfólkið upphæðina af í Klippi Skanna og inneignin í símanum lækkar um leið.
Spurt og svarað
- Hvernig fær kaupandinn gjafabréfið?
- Í tölvupósti um leið og greitt er. Þaðan má bæta því í Apple Wallet eða Google Wallet eða senda það áfram til þess sem fær gjöfina.
- Get ég selt upplifanir, ekki bara upphæðir?
- Já. Þú getur selt gjafabréf fyrir fasta upphæð eða fyrir upplifun, til dæmis bröns fyrir tvo.
- Tekur klippi þóknun af gjafabréfunum?
- Nei. Greiðslan fer beint inn á reikning staðarins. Aðeins gjöld greiðslugáttarinnar bætast við.
- Hversu lengi gilda gjafabréfin?
- Þú velur gildistímann sjálfur og hann stendur á gjafabréfinu.
- Þarf viðskiptavinurinn app?
- Nei. Hann skannar QR-kóðann með myndavélinni og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá