Fyrir stofur
Klippikort fyrir hárgreiðslustofur og snyrtistofur
Þegar sex vikur líða á milli heimsókna er gott að minna á sig. Klippikortið í símanum minnir á sig og SMS fer sjálfkrafa þegar langt er liðið frá síðustu heimsókn.
Sjötta klippingin frí
Þú ræður fjölda klippa og velur gjöfina. Kortið fer í símaveskið með einni skönnun.
Kveðja þegar langt er frá síðustu heimsókn
Þú stillir eftir hve marga daga viðskiptavinur telst óvirkur og þá fær hann SMS sjálfkrafa. Afmæliskveðjan sendist líka sjálfkrafa.
Gjafakort og inneign
Gjafakort er vinsæl gjöf. Inneignin liggur í símaveskinu og þú dregur af inneigninni í Klippi Skanna.
Spurt og svarað
- Þarf viðskiptavinurinn app?
- Nei. Hann skannar QR-kóðann með myndavélinni og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet.
- Fá viðskiptavinir áminningu?
- Já. Þú getur látið SMS fara sjálfkrafa til þeirra sem hafa ekki komið í ákveðinn tíma og einnig á afmælisdaginn.
- Get ég notað merkið mitt og liti staðarins?
- Já. Þú hleður upp merkinu, velur liti, fjölda klippa og gjöfina. Kortið fær útlit sem passar við staðinn þinn.
- Virkar þetta á fleiri en einum stað?
- Já. Þú getur haft marga staði á einum aðgangi og hver staður sem bætist við kostar minna.
- Hvað kostar klippi?
- 11.900 kr. á mánuði + vsk. fyrir fyrsta stað. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og engin binding.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá