Stafræn klippikort
Klippikortið þitt, beint í símaveskið
Viðskiptavinurinn skannar QR-kóða við kassann og klippikortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet. Starfsfólkið klippir með Klippi Skanna og hvert klipp birtist strax í símanum.
Hannað á nokkrum mínútum
Þú velur liti, merki og hversu mörg klipp þarf til að fá gjöfina. Þú getur líka sett áfangagjöf á miðri leið, til dæmis frían bolla eftir fimm klipp.
Klippt við kassann
Starfsfólkið skannar kortið með Klippi Skanna og ýtir á Klippa. Það tekur nokkrar sekúndur og kortið í símanum uppfærist um leið.
Kortið minnir á sig
Þegar gjöfin er tilbúin fær viðskiptavinurinn tilkynningu á lásskjáinn. Kortið týnist aldrei og gleymist ekki heima.
Þú sérð hverjir koma aftur
Allir sem sækja kortið bætast á viðskiptavinalistann þinn. Þú sérð hverjir koma oft og hverjir hafa ekki komið lengi. Þú getur sent þeim SMS.
Spurt og svarað
- Þarf viðskiptavinurinn app?
- Nei. Hann skannar QR-kóðann með myndavélinni og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet.
- Hvernig er klippt?
- Starfsfólkið skannar kóðann á korti viðskiptavinarins með Klippi Skanna á iPhone eða Android-síma og ýtir á Klippa. Kortið í símanum uppfærist um leið.
- Get ég notað merkið mitt og liti staðarins?
- Já. Þú hleður upp merkinu, velur liti, fjölda klippa og gjöfina. Kortið fær útlit sem passar við staðinn þinn.
- Hvað kostar klippi?
- 11.900 kr. á mánuði + vsk. fyrir fyrsta stað. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og engin binding.
- Virkar þetta á fleiri en einum stað?
- Já. Þú getur haft marga staði á einum aðgangi og hver staður sem bætist við kostar minna.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá