SMS-markaðssetning
SMS sem fylla rólegu dagana
Allir sem sækja kortið þitt bætast á viðskiptavinalistann. Þú sendir þeim tilboð með SMS á einni mínútu og klippi heilsar hverjum og einum með nafni.
Sama SMS, með nafni hvers og eins
Skrifaðu skilaboðin einu sinni og settu nafnið inn með einum smelli. Þú sérð hvað hver fær og hvað sendingin kostar áður en þú sendir.
SMS sem fara af stað sjálfkrafa
Afmæliskveðja, áminning um gjöf sem bíður og kveðja til þeirra sem hafa ekki komið lengi. Þú stillir þetta einu sinni og klippi sér um að senda.
Tölvupóstur líka
Þú getur líka sent tölvupóst frá netfangi staðarins til viðskiptavina sem hafa samþykkt að fá póst.
Spurt og svarað
- Hvað kostar SMS?
- 10 kr. + vsk. á hvert SMS. Íslenskir stafir taka meira pláss, svo langt skeyti getur farið í tvo hluta. Þú sérð verðið áður en þú sendir.
- Frá hverjum kemur SMS?
- Undir nafni staðarins, til dæmis KaffiYlur, en ekki undir símanúmeri.
- Hverjir fá skeytin?
- Viðskiptavinir sem hafa sótt kortið þitt og skráð símanúmer. Þú velur hvort allir fá skeytið eða aðeins hluti hópsins.
- Get ég dreift sendingunni?
- Já. Þú getur dreift sendingunni yfir mínútur eða klukkustundir, svo ekki komi allir í einu.
- Hvað kostar klippi?
- 11.900 kr. á mánuði + vsk. fyrir fyrsta stað. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og engin binding.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá