Fyrir kaffihús
Klippikort fyrir kaffihús
Pappírskortið með stimplunum týnist í vasanum. Stafræna klippikortið fer í símaveskið og minnir á sig þegar tíundi bollinn er frír.
Tíundi bollinn frír
Þú ræður fjölda klippa og velur gjöfina. Viðskiptavinurinn sér alltaf hve mörg klipp vantar upp á næstu gjöf.
Fljótlegt við kassann
Starfsfólkið skannar kortið og ýtir á Klippa. Engir stimplar, engin pappírskort og engin biðröð.
Fylltu rólegu tímana
Rólegur eftirmiðdagur? Sendu tilboð með SMS til fastra viðskiptavina og fáðu þá til að koma þegar þér hentar.
Gjafakort í símann
Seldu gjafakort við kassann eða á netinu. Inneignin liggur í símaveskinu og lækkar í hvert sinn sem greitt er með kortinu.
Spurt og svarað
- Þarf viðskiptavinurinn app?
- Nei. Hann skannar QR-kóðann með myndavélinni og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet.
- Hvernig er klippt?
- Starfsfólkið skannar kóðann á korti viðskiptavinarins með Klippi Skanna á iPhone eða Android-síma og ýtir á Klippa. Kortið í símanum uppfærist um leið.
- Get ég haft fleiri en eitt kort?
- Já. Þú getur til dæmis haft eitt klippikort fyrir kaffi og annað fyrir bakkelsi.
- Get ég notað merkið mitt og liti staðarins?
- Já. Þú hleður upp merkinu, velur liti, fjölda klippa og gjöfina. Kortið fær útlit sem passar við staðinn þinn.
- Hvað kostar klippi?
- 11.900 kr. á mánuði + vsk. fyrir fyrsta stað. Fyrstu 7 dagarnir eru fríir og engin binding.
Prófaðu frítt í 7 daga · Verðskrá